|
Velkomin á heimasíðu Brúðubílsins |
|
Halló Krakkar
Gleðilegt sumar 2012!
Eins og venjulega verður Brúðubíllinn með sýningar í júní og júlí og allir eru velkomnir.
Frumsýningin verður miðvikudaginn 6.júní klukkan 14:00 í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg 11.
Sýningin í júní heitir "Allir dansa Konga". Það kemur gestur frá Afríku til Lilla og hann heitir Mongó og þeir ætla að taka lagið með ykkur.
Í júlí, þá er frumsýningin á sama stað og sama tíma, miðvikudaginn 4.júlí. Ég segi ykkur seinna hvað sýningin heitir sem þá verður.
Helga er leikhússtjóri og stjórnar brúðunum ástamt Eyrúnu. Bílstjórinn heitir Ágúst.
Við hlökkum öll til að sjá ykkur kát og hress.
|